Fyrir utan þá næringu að hitta kollega frá öðrum löndum eru verkefnahugmyndirnar sem hinir kennararnir koma með hluti af töfrunum sem felast í Science on Stage Festival. Hér eru nokkur dæmi um verkefni sem kennarar hafa kynnt á Science on Stage menntaveislum.
Science on Stage 2024
Science on Stage Festival 2024 var haldið í Turku, Finnlandi, og sóttu það um 450 kennarar hvaðanæva úr Evrópu sem sýndu verkefni á 235 básum. Á vef menntahátíðarinnar má finna ýmsar bjargir, m.a. yfirlit yfir öll verkefnin sem til sýnis voru, en hér að neðan eru nokkur sem íslensku sendinefndinni þóttu sérstaklega áhugaverð:
- Light Painting: Gullfallegt. Það eiga öll að leika sér með þetta. Góður inngangur að frumlitum og litablöndun. STEAM in education
- Earthquake is not the one to blame: Frábær leið til að sýna hvernig hægt er með einföldum hætti verja háar byggingar gegn eyðileggingarmætti jarðskjálfta. Low-cost experiments in STEM education
- Teaching details of proteins’ structure in 3D: Mjög skemmtileg og lýsandi framsetning á próteinbroti. Líkan búið til úr vír og perlum og lýsir vel strúktúr og hegðun próteinsins. Á erindi við alla kennara sem kenna þetta. Low-cost experiments in STEM education